Saturday, May 14, 2005

ÉG ER KOMIN MEÐ NÝTT BLOGG, ÉG ÆTLA EKKI AÐ GEFA UPP SLÓÐINA HÉR... ÞIÐ VERÐIÐ AÐ EMAILA MÉR Á ERNAJAZ@HOTMAIL.COM TIL AÐ FÁ SLÓÐINA.... HÍ HÍ :)

Nikita @ 1:30 PM.


(0) comments
Friday, March 04, 2005

Vá næstum mánuður síðan maður uppfærði seinast, þetta er ekki nógu sniðugt. Hvernig er ástandið orðið? Alla vega ég er á fullu í skólanum eins og er, gengur mjög vel, svo er ég að vinna á Domino's ... ennþá... með hundinn, kallinn og íbúðina enn...
Ég fór allt í einu þvílíkt að hugsa um ástandið hérna, ekki sátt hversu mikið mér tekst að hitta stelpurnar og kenni vinnunni þar um. Alltaf að vinna þegar þau eru að gera eitthvað og svo þegar ég er í fríi þá öfugt.
Ég er að leita eftir að komast á samning og þá hættir þetta rugl!
Get ekki beðið, alla vega búin að hópa öllum saman um helgina og vonandi komast allir, engar afsakanir í þetta sinn. Hlakka til, svo er mín í fríi alla næstu helgi og aldrei að vita nema það verður farið á djammið ;) híhí
Svo er árshátíð hjá mér á þriðjudag, fæ meira segja 5 ára næluna, er svo sorgleg...
Jæja, verð að fara að halda áfram... er að reyna að læra ;)

Nikita @ 10:14 PM.


(0) comments
Friday, February 11, 2005

Ótrúlegt, núna er maður komin með Neró og maður fer þá auðvitað miklu oftar út en maður gerði. Og hvað gerist, já maður veikist. Ég ligg heima, komst ekki í skólann í morgun, með þvílíkt kvef, hita og hausinn alveg í klessu, eins og það sé geðveikur þrýstingur í honum. Ótrúlega pirrandi! Svo auðvitað get ég ekki hangið bara inni því Neró þarf auðvitað að komast út. Jæja, ætla að liggja upp í sófa í sjálfsvorkunn og drekka Pepsi!

Nikita @ 5:55 PM.


(0) comments
Thursday, February 10, 2005

Endilega kíkið á linkinn til hliðar, sem heitir Neró, Máni & Birta.
Þar eru fullt af myndum af börnunum okkar.

Nikita @ 3:31 PM.


(0) comments



Neró nýjasti meðlimurinn

Nikita @ 2:16 PM.


(0) comments



Æi maður er svo sætur

Nikita @ 2:11 PM.


(0) comments



Máni "prakkarinn"

Nikita @ 2:11 PM.


(0) comments



Birta "drottningin" að skoða útsýnið

Nikita @ 2:10 PM.


(0) comments
Thursday, February 03, 2005

Af hverju getur maður ekki unnið smá pening í lottó?
Maður er alltaf að vinna og vinna til þess að reyna að fá aðeins meiri pening.
Lilja bauð mér að koma með sér í bústað núna um helgina, ég hef bara ekki efni að missa svona marga tíma frá vinnu og varð því að afþakka og vinna!
Til hamingju Sigga F, loksins laus frá THE MOGG! Verst að ég gat ekki hitt þig í hádeginu en ég var í skólanum :) verð að reyna að vera dugleg... reyndi missti ég af tímanum mínum í dag. Jobbi ákvað að ég ætti að kúra hjá honum og slökkti á honum, hehe segi svona... nei hann ákvað að slökkva bara á símanum hálfsofandi, svo vaknaði mín hress kl 12:08... búin að missa af öryggisfræði! ÆÆ!
Annars er lítið að frétta af mér, búin að blóta tölvunni minni mjög mikið.
Allt í einu fór hún að láta mjög illa í Sims 2, hverfið mitt sem í bjuggu meira en 80 manns og 6 ættliðir fór að hrynja og ég varð að byrja upp á nýtt! BUHUHU!!
Jæja, verð að halda áfram að vinna....

Nikita @ 9:02 PM.


(0) comments
Sunday, January 30, 2005

Hvað er annars að frétta af liðinu?!?
Við erum bara að vinna á fullu, og já ég er auðvitað á fullu í skólanum.
Geðveikt gaman!
Svo er maður að byrja að spá í árshátíðina í vinnunni, hún fer að skella á og maður þarf að athuga ýmislegt svo hægt verði að gera þetta að pottþéttri skemmtun. Ég er bara fegin að ég eigi ekki að mæta fyrr en um hádegi daginn eftir, þannig að ég get alla vega legið eitthvað heima í þynnku. Híhí.
Annars vorum við áðan í mataboð hjá mömmu og pabba, ekki nógu gott, ég var bara skömmuð... var víst ekkert búin að koma í heimsókn né hringja síðan á nýársdag. Svona er þetta, brjálað að gera! Alltaf þegar aðrir eru í fríi, þá er ég að vinna. Þegar ég er í fríi, þá eru allir lausir! It's driving me crazy!!!! Alla vega ég er í góðu skapi, mánuður í leikinn minn og ég er loksins komin með account í WarCraft.
Ég og Jobbi höfðum það ýkt nice í gærkvöldi, sátum tvö í sófanum að spila WarCraft, hann að hjálpa mér að ná mér í stig og komast hraðar áfram.
Það þarf ekki mikið til að halda mér ánægðri! :)

Nikita @ 8:09 PM.


(0) comments


Djöfull var maður nú ógeðslegur í gær. Ég hef ALDREI á ævinni upplifað jafnmikla þynnku, þetta var verra en eftir djammið á Krít... stelpur þið ættuð að muna eftir því. Ég var fárveik allan laugardaginn, fór í vinnuna en varð að fara aftur heim eftir klukkutíma, var ekki að meika neitt. Ætlaði að djamma á laugardag en það var lítið úr því vegna þynnku.
Þetta var MJÖG fámennt á föstudaginn hjá okkur. Ég, Jobbi, Valur, Hrannar, Haffi og Lilja skemmtum okkur þó mjög vel. Horft á Idol og síðan spjallað og drukkið. Ég og Jobbi fórum þó ekki í bæinn, vegna ýmsra ástæða :)
Þetta var samt fínt, hélt samt að ég myndi deyja þegar ég vaknaði daginn eftir. SHIT, hvað mér leið illa!

Nikita @ 8:03 PM.


(0) comments
Sunday, January 23, 2005

Jæja hvað segir liðið gott? Mér leiðist, 50 mínútur til lokunar og búið að gera allt, kannski maður fari að skoða b2.is, þar er alltaf eitthvað skemmtilegt...
Er í skólanum og að vinna á fullu... á mér ekkert líf

Nikita @ 2:14 AM.


(0) comments
Sunday, January 16, 2005

Ohhh hvað það er dekrað við mann... ;)
Þegar ég kom heim úr vinnunni í gær, komu sumir til dyra með rós í hendi. Búið var að slökkva öll ljós í íbúðinni og setja kerti út um allt :)
Jobbi var búinn að elda einn uppáhaldsmatinn minn, búinn að leggja geðveikt sætt á borð og auðvitað voru rósir í vasa á borðinu. Búið var að hella í glasið mitt og allt til. Svo leiddi hann mig inn á bað, þar sem voru fleiri kerti. Búið var að setja í baðið, froðubað og rósarblöð. Svo var undarlegur blár glampi í vatninu, geðveikt töff. (Hann setti djammljós í botninn á baðinu). Svo var ég leidd inní svefnherbergi. Búið að setja rósarblöð á rúmið og kveikja á kertum. Svo lá ein rós í rúminu. Þetta var geðveikt flott! Mín alveg í skýjunum!
Borðuðum æðislegan mat, fórum í dýrlegt bað og já... restina hmmm....
Þetta var æðislegt kvöld :) Ekkert smá gaman að koma að svona þegar maður kemur geðveikt þreyttur eftir vinnuna!

Nikita @ 10:21 AM.


(1) comments


Taurus | April 20 - May 20
Monday 10 The New Moon asks, "Where do you want to go?" Any ideas?
Tuesday 11 You've put a lot into this. So don't give up now
Wednesday 12 Your dreams are vivid, and they've got a message for you
Thursday 13 A friend needs some chocolate and sympathy from you today
Friday 14 Capricorns and Cancerians are attracted to you at the moment
Saturday 15 You've got the focus to make a special wish happen
Sunday 16 Intuition whispers in your ear. And you know it's oh-so right

Nikita @ 10:20 AM.


(0) comments
Friday, January 14, 2005

Fyrsta vikan búin í skólanum!
Þetta var helvíti fínt, ég er alveg að fíla mig í þessu þó að þetta hafi kostað mig dágóðan pening. Skólagjald, efniskostnaður, bækur og áhöld kostuðu samtals um 90 þúsund krónur en ég sé ekkert eftir þessu því þetta er helvíti fínt. Búin að kynnast fullt af liði í bekknum t.d. Írísi, Lovísu, Stefaníu, Rachel og fleiri. Við erum 12 í bekknum, hress og skemmtilegur hópur. Mjög góða stundaskrá finnst mér, byrja ekki fyrr en 12:35 tvisvar í viku og eiginlega ekkert af götum og veseni. Svo er ég að vinna eins og brjálæðingur um helgina, er dagvakt laugardag og sunnudag.
Við Jobbi ákvöðum að vera geðveikt dugleg í dag, löbbuðum og skelltum okkur í sund, fengum okkur svo pulsu eftir á. Núna er ég ein heima, að leika mér í tölvunni. Jobbi á fundi með yfirmönnunum á Grand Hotel, opinn bar og hvað eina!
Annars fengum við loksins World of Warcraft, djöfulsins snilldarleikur. Ógeðslega töff og geðveikt fjölbreyttur. Ég er Yuna, priest sem sérhæfir sig í skinning & leathering. Jobbi er Kaoz, mage (galdramaður) sem sérhæfir sig í herbs. Algjör snilld.
Jæja best að fara í WOW, ójá! Svo er Idol í kvöld! Hver haldiði að þetti út?

Nikita @ 4:58 PM.


(0) comments
Thursday, January 06, 2005

Birta og Máni liggja sitthvorum megin við lyklaborðið, leitandi eftir athygli. Mamma upptekin, var að borga reikning og lesa e-mailin. Annars er allt gott að frétta. Ég byrja í skólanum á föstudaginn og hlakka svolítið til að fá að byrja og skella mér í smá lestur! Guð hvað ég er sorgleg. Það er alveg ótrúlegt hvað það er dýrt að lifa í þessu landi, það er þetta og þetta sem þarf að borga og áður en maður veit af, eru öll launin horfin. Alveg ótrúlegt. Ég er bara fegin að ég þarf ekki að kaupa margar bækur annars væri ég í vandræðum! Hmmm, þá man ég það... sækja símann til Tengdó! Alla vega, já skólinn er að byrja. Svo bíður maður spenntur eftir WOW. Jobbi ákvað að sýna mér aðeins úr leik sem honum langar í. Eftir að hafa skoðað leikinn vel og kynnt sér hann, verð ég að segja að þetta virkar snilldarleikur og nú get ég ekki beðið eftir að fá að prófa hann. Það góða samt er það að við getum bæði spilað hann í einu :) Hann í makkanum og ég í pc. Þetta er netleikur, heitir í rauninni World Of WarCraft... WOW er stytting ;) Við erum nýkomin með þráðlaust net og nú bíður maður eftir að Hive fari í gang. Ó já, við ákvöðum að skipta um þjónustu...!
Helgin verður annars mjög lame, ég er að vinna close föstudag, laugardag og sunnudag. Jobbi auðvitað að vinna líka, vinnuvikan hans hálfnuð. Jæja nú ætla ég að hætta og reyna að sofna aftur. Tókst að sofa í klukkutíma, vaknaði og ákvað að athuga peningamálin ;) híhí góða nótt, ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera :)

Nikita @ 4:47 AM.


(0) comments
Sunday, January 02, 2005

Loksins er komið nýtt ár. Ég er búin að vera að reyna að muna að skrifa 2005 í allt kvöld... bara búin að ruglast nokkrum sinnum :)
En alla vega var æði á gamlarsdag hjá okkur. Við fórum í mat til tengdamömmu þar sem ég gerði mig að algjörum fávita. Greyið mamma Jobba var búin að hafa þvílíkt fyrir matnum, ótrúlega flott og fínt allt. Svo kem ég .... matarkikkurinn mikli..!! Í forrétt voru þvílíkir sjávarréttir sem mín borðaði auðvitað ekki. Síðan var kalkún, nautakjöt, ofnbakaðar kartöflur, maís, gulrætur og annað flott. En mín borðaði ekkert, reyndi að gera tilraun í kalkún og ofnbakaða kartöflu, gekk ekki vel. Svo kom eftirrétturinn, en það reyndist vera núggat í ísnum, DAMN! Ég gat ekkert borðað. Mér verður aldrei aftur boðið í matarboð hjá tengdó, hatar örugglega að fá mig í mat!

Partý var hjá okkur um kvöldið. Þetta lið mætti og skemmti sér: Ég, Jobbi, Sigga F, Jóhanna Bettý, Haffi, Einar, Jói, Lilja, Axel, Bjartur, Tinna Björk, Einhverjir fleiri gaurar, ... kannski voru fleiri en þetta, man ekki alveg.
Jobbi gerði snilldardrykk, Rauðvínsbollu. Ég hata rauðvín en þetta var alveg geðveikt gott :) Við fórum ekkert niður í bæ, heldur vorum heima djammandi alla nóttina. Fólk fór síðan að týnast heim um átta leytið og við fórum að sofa.
Svo vaknaði ég við símann kl 4, pabbi að athuga hvort við værum ekki á leiðinni í mat, úff!! Ég ákvað að afboða kurteislega sökum hausverkja ;)
Nú er bara að skipuleggja næsta djamm... hehe segi svona ;)

Nikita @ 10:07 PM.


(1) comments
Sunday, December 26, 2004

GLEÐILEG JÓL ÖLL SÖMUL!!!
Vonandi fengu allir eitthvað skemmtilegt í jólagjöf... alla vega fengum við þessar gjafir...

Örbyljuofn, ristavél, hraðsuðuketil, kaffikönnu, rúmteppi, Jamie Oliver matreiðslubók, blandara, nóa siríus konfektkassa, Lush baðsprengjukassa, SúperSex, geðveikt mjúka sokka, peysu (Jobbi), Body Shop stóra körfu, gjafabréf í ikea, gjafabréf í Smáralind, Need 4 Speed Underground 2, Ratchet & Clank 3, make-up (ekki Jobbi), svitalyktareyðir, ilmvatn, ísskápasegul, geðveika tannbursta (he & she), konfektkassa, langan aftereight, USB lykil, olíuflösku, íþróttatösku (merkt Securitas), vekjaraklukku, vettlinga, eyrnalokka, spennusögu, aðra bók, slæðu, glasamottur, tvær litlar jólastyttur, staupglös,... þá held ég að það sé komið, vonandi hef ég ekki gleymt neinu ;)

Við vorum annars í mat hjá mömmu minni og pabba á aðfangadag, allt gert dálítið hratt því Jobbi þurfti að fara að vinna kl. 8. Síðan í gær, vorum við í mat hjá Súsu og Omma (ömmu og afa Jobba). Svo er bara leikið sér í tölvunni og mætt allt of seint í vinnuna. Pælið hvað þetta er lame, átti að mæta kl. 13 í vinnuna en tókst samt að sofa yfir mig!!

Nikita @ 3:05 PM.


(0) comments
Monday, December 20, 2004

Allar jólagjafir komnar.... nema reyndar ein... búið að pakka helmingnum af gjöfunum og skila fjórum gjöfum af sér! Svo er bara að klára allt í dag og á morgun, síðan á auðvitað eftir að laga til og svona... en þetta er allt að koma!

Nikita @ 8:49 PM.


(0) comments
Wednesday, December 15, 2004

Húrra, loksins er maður búinn að halda partý í nýju íbúðinni. Ég verð að segja að ég og Jobbi vorum alveg æðislega sátt við partýið. Þetta var geðveikt gaman, allir í stuði og ekkert vesen! Þetta var bara snilld! Þetta lið kom annars: Helga, Gulli, María Barbara, Sigga F, Sigga Björk, Aldís, Jóhanna, Sturla, Axel, Lilja Dís, Hrannar, Dóra, Haffi, Tinna Karen, Maggi, einhverjir tveir gaurar sem ég man ekki nafnið á og svo var ég og Jobbi auddað þarna :)
Ég er búin að setja myndir inn á netið svo endilega klikkið á linkinn hægra megin og skoðið :)
HEY ANNARS!! Það er áramótapartý hjá okkur :) :) Endilega látið mig vita, þið sem ætlið að koma :) :) Þetta verður hörkustuð!!!

Nikita @ 2:07 AM.


(0) comments
Wednesday, December 08, 2004

Monday 6 A great week for new haircuts or make-up experiments
Tuesday 7 Work opportunities and cash luck look good today
Wednesday 8 Hold off texting him until this afternoon at least
Thursday 9 Another high-octane weekend is coming up. Are you prepared for it?
Friday 10 Sagittarians and Scorpios are so attracted to you. What's your secret?
Saturday 11 Keep shopping trips small and focused. Big groups break your budget!
Sunday 12 The New Moon brings you saucy texts and much-needed money luck

Nikita @ 11:25 AM.


(1) comments


Partý hjá okkur á laugardaginn :D
Loksins fæ ég að vera í fríi um helgi og ákvað að halda partý, fyrst löppin er loks hægt að blögga mig svona geðveikt mikið! Get dansað alla vega!
Við hóuðum í fullt af fólki og flestir ætluðu að koma, sem er bara kúl...
Svo er Idol kvöld hjá Siggu F, nice rólegt kvöld :)
Annars er lítið að frétta núna, er auddað í vinnunni :)

Nikita @ 11:18 AM.


(0) comments
Monday, December 06, 2004

Ég fékk þennan lista í e-maili, ákvað að pósta honum hérna ;)

1. What time did you get up this morning? Woke up around 8 but didn't get out of bed until around 9:30
2. Diamonds or pearls? Diamonds... "diamonds are a girl's best friend"
3. What was the last film you saw at the cinema? Bridget Jones-The edge of reason
4.What is your favourite T>V> show? CSI & Joey
5. What did you have for breakfast? Nothing...
6.What is your middle name? Ásta
7.What is your favourite cuisine? Haven't decided on one...
8. What food's do you dislike? ONIONS, jalapenos, svið, bjúga, shrimps
9. What is your favourite crisp flavour? Paprika
10. What is your favourite CD at the moment? The newest CD from PINK
11. What kind of car do your drive? 94' Red Opel Corsa
12. Favourite sandwhich? My special ClubSandWich
13. What characteristics do you despise? Selfishness, Rude, Dishonesty & Bully
14. Favourite item of clothing? My black tshirt, very flirty ;)
15. If you could go anywhere in the world on vacation, where would you go? New Sealand
16. What colour is your bathroom? Grey tiles
17. Favourite brand of clothing? None in favourite, but I would like a Diesel jeans :)
18. Where would you retire to? New Sealand or Somewhere in USA
19. Favourite time of day? Evenings, best stuff happens then
20. What was your most memorable birthday? None so far
21. Where were you born? Reykjavik
22. Favourite sport to watch? VolleyBall... tanned guys in shorts :Þ
23. Who do you least expect to send this back to you? Ásta
24. Person you expect to send it back first? Jobbi
25. What fabric detergent do you use? Ask my mom
26. Coke or Pepsi? PEPSI :) Pepsi Max is better thou
27. Are you a morning person or night owl? Night owl
28. What is your shoe size? 37-38
29. Do you have any pets? Two cats, Birta & Máni
30. Any new and exciting news you'd like to share with your family and friends? Hmmm....
31. What did you want to be when you were little? Vet
32. What are you meant to be doing today? Working

Nikita @ 1:05 PM.


(0) comments
Sunday, December 05, 2004

Ótrúlega er erfitt að koma sér á lappir þegar sumir mega sofa lengur. Jobbi kom heim um 8 leytið í morgun eftir vinnu. Mín ætlaði að vera dugleg og fara á lappir þá, en það var allt of freistandi að kúra aðeins lengur. Vaknaði síðan 9:21, dröslaði mér fram úr og tók mig til. Hvað beið mín þegar ég kom inn í stofu? Máni litli óþægagemlingurinn hafði migið á koddann sem lá í sófanum! Algjör asni! Þannig að mín þurfti að þrífa koddann, þrífa sófann og skamma köttinn í einum grænum því ég átti líka eftir að finna til nesti! Arrgg, Máni er svo óþægur að það er ótrúlegt! Alltaf að príla út um allt, og henda öllu niður. Hann er samt svo sætur, þið fáið mynd af honum að sjá í kvöld þegar ég set myndir á síðuna!

Nikita @ 1:54 PM.


(0) comments


What does your Christmas-gift style say about you?

» Creative cat

You love the idea of surprising people with your gifts and your aim is to give everyone something unique. You're not bothered about how many shopping days there are until Christmas because you're busy at home sewing, sticking and crafting homemade presents. You enjoy the attention you get from showing off your creative side. You're a sensitive type who's not great at taking criticism, but you make up for it because you're brimming with fun ideas. No one can ever guess what they'll be getting from you and some of your experiments have worked better than others!

( Próf tekið á cosmogirl.co.uk )



Nikita @ 11:04 AM.


(0) comments


Erna Ásta heiti ég. Léttrugluð en skemmtileg að sögn. Tuttugu og eins árs stúlkumær - fer að verða 22. Bý með kærastanum í Teigunum. Vinn sem vaktstjóri með skemmtilegu fólki á pizzustað. Á tvo ketti - Birta & Máni. Á líka hund - Neró. Á allt of mikið af tölvuleikjum. Er líka í skóla. Á Opel Corsu rauðan. Dálítið frek á köflum ;)



MYNDIR:
Fyrsta partýið í nýju íbúðinni!!

Áramótin 2004/2005!!

Neró, Máni & Birta

Heimasíðan hans Neró

Kærastinn: Jobbi
Íshokkígellan: Sigga F
Skautaskvísan: Sigga B
Turtildúfurnar: Helga & Gulli
Bumbubúinn litli: ?
Djammarinn: María Barbara
Ástralíufarinn: Jóhanna
Elsta vinkonan: Þóra
Litla Systir: Alda Björk
Teiknarinn: Ásta María
Fyrrverandi bekkjabróðir: Jón Gestur
Vinur kærastans: Palli
Drottningin: Kristín Vala


Ýmsar Síður
Skemmtileg Umræðuefni: Hugi.is
Styttir sér stundir: Leikir
Sæt lítil dýr: Neopets
Vefpóstur: Hotmail
Domino's Pizza: Starfsmannafélagið Pítsus
Blöggsíða: blogger
Bakgrunnar : de.lin*

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com